Smelltu á hlekkinn til þess að bóka seinni heimsókn með verkefnastjórum Hallgerðargötu
Tvö falleg hús með 42 íbúðum og sameiginlegum bílakjallara við Kirkjusand í Reykjavík
Smelltu á hlekkinn til þess að bóka seinni heimsókn með verkefnastjórum Hallgerðargötu
Framkvæmdir á vegum Búseta standa yfir að Hallgerðargötu 24 og 26 við Kirkjusand í Reykjavík. Búseti byggir þar 42 fallegar íbúðir, en skóflustunga var tekin í október 2022 og hófust framkvæmdir í kjölfarið. Um er að ræða tvö hús með sameiginlegum bílakjallara og er áætlað að afhending íbúða fari fram á síðasta ársfjórðungi ársins 2024. Gert er ráð fyrir að sala hefjist í apríl 2024.
Hallgerðargata er einstaklega vel staðsett, steinsnar frá grónum svæðum og hverfum eins og Laugardal og miðbæ. Stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir, náttúruperlur, garða og íþróttamannvirki, sem bjóða upp á fjölbreytta útivist og afþreyingu. Þá eru samgöngur til og frá hverfi greiðar.